BK Decor sérhæfir sig í innanhússráðgjöf og stíliseringu fyrir heimili og fyrirtæki.
Markmiðið er að skapa falleg, persónuleg og vel skipulögð rými sem endurspegla þarfir, lífsstíl og smekk hvers viðskiptavinar. Lögð er áhersla á lausnir sem sameina bæði fagurfræði og notagildi – hvort sem um er að ræða litlar eða stærri breytingar.
BK Decor býður upp á BRONS, SILFUR og GULL þjónustuleiðir sem innifela mismikla þjónustu, allt eftir umfangi verkefnis. Þjónustan spannar allt frá ráðgjöf og innblæstri yfir í heildstæða hönnun og umsjón með verkefnum frá upphafi til enda.
Með faglegri ráðgjöf um skipulag rýma, lita- og efnisval, lýsingu, húsgögn og skrautmuni er markmiðið að skapa rými sem líta vel út, virka vel og stuðla að aukinni vellíðan í daglegu lífi.
Einnig er boðið upp á fjarráðgjöf sem hentar vel viðskiptavinum um allt land.
BK Decor var stofnað af Beggu Kummer, innanhússstílista með brennandi áhuga á hönnun, heimilum og þeirri umbreytingu sem vel útfært rými getur haft á líðan fólks.

