Living room with beige sectional sofa, light-colored wood flooring, large window with sheer curtains, black pendant chandelier, framed artwork on dark wall, small side table with white orchid, black decorative objects, and a gray office chair.

Við sköpum rými sem endurspegla þig

Um BK Decor

BK Decor sérhæfir sig í innanhússráðgjöf og stíliseringu fyrir heimili og fyrirtæki.

Markmiðið er að skapa falleg, persónuleg og vel skipulögð rými sem endurspegla þarfir, lífsstíl og smekk hvers viðskiptavinar. Hvort sem um er að ræða litlar breytingar eða heildstæða hönnun er lögð áhersla á lausnir sem sameina fagurfræði og notagildi.

A woman with blonde hair smiling and placing a glass vase with greenery on a marble counter in a modern kitchen with wooden cabinets.

Umsagnir frá viðskiptavinum

✳︎

Umsagnir frá viðskiptavinum

✳︎

Umsagnir frá viðskiptavinum ✳︎ Umsagnir frá viðskiptavinum ✳︎

  • Begga hefur hannað og séð um 3 íbúðir fyrir mig í gegn um árin og hun er alveg frábær og topp þjónusta ! Hún hefur séð um alla hönnun og innréttingarnar og öll kaup og uppsetningu Öll þjónusta er alveg 100% og alltaf með flottar lausnir í kringum alla hönnun Mæli klárlega með henni! S. H

    Viðskiptavinur bókaði GULL þjónustu

  • Mín upplifun af Beggu var ótrúlega góð. Hún svaraði öllum tölvupóstum hratt og örugglega, fylgdi eftir þeim hugmyndum sem hún lagði fyrir okkur og hún setti fram hugmyndirnar á mjög þægilegan hátt fyrir okkur. Begga kom í heimsókn til okkar áður en hún sendi okkur hugmyndirnar og hún er með ótrúlega góða nærveru og gott vision yfir því hvernig hlutirnir koma vel út.    Margrét Þórhildur Maríudóttir_Landsnet

    Viðskiptavinur bókaði fyrirtækjaráðgjöf

  • ,,Að fá Beggu til að aðstoða okkur var líklega besta ákvörðunin sem við tókum í flutningaferlinu. Þjónustan fyrsta flokks og sparaði okkur mikinn tíma og fyrirhöfn. Hún kom með hugmyndir um hluti sem aldrei hefði hvarflað að okkur að við þyrftum að pæla í“

    Viðskiptavinur bókaði SILFUR þjónustu

  • Frábært að fá yfirsýn yfir rýmið, engar ýktar lausnir bara svör við þeim spurningum sem við höfðum.  Begga er með góða nærveru og mjög gagnlegt að fá hana til sín. kv.Lilja 

    Viðskiptavinur bókaði BRONS ráðgjöf

  • Sæl Begga, Tillögurnar frá þér voru mjög góðar og ég notaði þær að fullu. Tekið var tillit til minna óska um húsgagnaval og þær útfærðar með frábærum árangri.  Kveðja  Valur 

    Viðskiptavinur bókaði fjarráðgjöf

  • Við fengum Beggu hjá BK Decor til að aðstoða okkur við fíniseringar á nýja heimilinu okkar.  Begga var mjög þægileg í öllum samskiptum, hún kom með flottar hugmyndir í samræmi við okkar eigin óskir. Niðurstaðan varð hlýlegt og smart heimili.  Við mælum svo sannarlega með BK Decor.  Bjarnþóra M. Pálsdóttir.

    Viðskiptavinur bókaði SILFUR þjónustu

  • Frábært samstarf við Beggu sem náði vel utan um þarfir okkar og skapaði bæði fallega og hagnýta hönnun. Rýmin endurspegla vel menningu fyrirtækisins og styðja við vellíðan starfsmanna. Fagleg, lausnamiðuð og einstaklega góð í samskiptum, mælum eindregið með. Bkv. Fanney_Avilabs

    Viðskiptavinur bókaði fyrirtækjaráðgjöf

Hafðu samband

Ertu með verkefni í huga eða langar þig að fá ráðgjöf?

Segðu okkur frá rýminu þínu og því sem þú vilt ná fram. Við förum yfir verkefnið með þér og finnum þá þjónustuleið sem hentar best.

Fylltu út formið hér til hliðar og við höfum samband eins fljótt og auðið er.